It looks like you are using an older version of Internet Explorer which is not supported. We advise that you update your browser to the latest version of Microsoft Edge, or consider using other browsers such as Chrome, Firefox or Safari.

Hvað eru vefkökur?

Vefkökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem eru sendar í tölvuna í hvert sinn sem þú ferð inn á vefsíðu. Á vefsíðum Novartis gegna vefkökur nokkrum mismunandi hlutverkum eins og t.d. að gera notandanum kleift að vafra um síðuna á skilvirkan hátt, geyma stillingar og að tryggja sem besta upplifun notandans af vefsíðunni.

Í tilskipun Evrópusambandsins 2009/136/EB segir að vista megi vefkökur á tölvunni þinni ef þær eru nauðsynlegar fyrir virkni síðunnar en fyrir allar aðrar vefkökur þurfum við þitt leyfi fyrir vistun.

Vefsíður Novartis nota stundum vefkökur sem ekki eru nauðsynlegar. Þetta er ekki gert til að fylgjast með einstaka notendum eða til að bera kennsl á þá, heldur til þess að öðlast mikilvæga þekkingu á því hvernig vefsíðurnar eru notaðar og í þeim tilgangi að gera vefsíðurnar stöðugt betri fyrir notendur. Við getum ekki veitt þá þjónustu sem við gerum án þeirrar þekkingar sem við fáum frá kerfunum sem nota þessar vefkökur.

Tegundir af vefkökum sem við notum

Ef þú ákveður að velja tungumál, leturstærð eða tilteknu útgáfu af vefsíðunni (t.d. í háskerpu) eru notaðar „vefkökur sem sérsníða notendaviðmót“. Þegar einu sinni er búið að stilla þetta þarftu ekki að velja þínar stillingar á ný þegar þú heimsækir síðuna aftur seinna.

Með því að nýta sér þjónustu vefgreininga vill Novartis afla sér upplýsinga um hvernig þeir sem fara inn á vefsíðuna nota hana. Þá er fjöldi heimsókna talinn og við fáum almennar upplýsingar um hvað sá gerir sem heimsækir síðuna – t.d. hver leitarorðin eru í leitarvélinni sem leiða notandann inn á síðuna, hversu lengi heimsókn á síðuna varir að jafnaði og meðaltal þeirra vefsíða sem notandi skoðar. Í þeim tilgangi setum við inn „vefkökur frá fyrsta aðila“ á tölvuna þína.

Hugsanlega notum við einnig þjónustuaðila eins og Google Analytics til að vinna tölfræðiupplýsingar. Í þeim tilfellum mun Google setja inn „vefkökur frá þriðja aðila“ inn á tölvuna.
Novartis geymir og hefur umsjón með öllum gögnum sem safnað er með vefkökunum í þeim löndum sem Novartis starfar.

Hvernig á að stilla vefkökur

Ef þú vilt ekki taka á móti vefkökum getur þú stillt vafrann þinn þannig að þú ert látinn vita þegar vefkökur eru sendar í hann eða þú getur hafnað vefkökum alfarið. Þú getur einnig eytt vefkökum sem þegar er búið að setja inn.

Ef þú vilt takmarka eða loka á vefkökur í netvafra sem búið er að setja inn á búnaðinn sem þú notar, þá er hægt að gera það í stillingum vafrans og ætti hjálparbúnaður vafrans að geta aðstoðað þig við það.